Bakgrunnur
Velkomin(n) á
JonDan.is
.
Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.
Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.
Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.
Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".
JonDan.is
Blogg
Greinasafn
Myndir
Hver er maðurinn
Fyrir mitt minni
Minningabrot
Af öðrum toga
Fjölskyldufréttir/Fami...
Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði
Senda á fésbók
Afkomendum fjölgar
Þriðja barnabarnið mitt bættist við þriðjudaginn 31. ágúst 2010, klukkan 18:55, sem sé nógu snemma til að ná kvöldfréttum sjónvarpsins. Þetta reyndist dálítill telpuhnokki, 3.990 grömm, eða rétt um 16 merkur að fornu tali og 50 cm að lengd.
Þessi pínulitla stúlka er dóttir Söru, yngri dóttur minnar, og sambýlismanns hennar, Sigurðar Helgasonar og heitir Elva Kamilla.
Fyrir eiga þau hjónaleysin ungan son, Patrik Nóa. Hann fæddist 7. janúar árið 2008 og Sara segir mér að hann sé afar hrifinn af þessari litlu systur og duglegur að kyssa hana.
Eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
Til baka
{1}
##LOC[OK]##
{1}
##LOC[OK]##
##LOC[Cancel]##
{1}
##LOC[OK]##
##LOC[Cancel]##
Tweet
X
Hafðu samband
Mitt nafn
*
Mitt netfang
*
*
Fyrirspurn
*
Talan í myndinni hér að ofan er
*
X
Senda
Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda
Mitt nafn
Mitt netfang
Athugasemd / efni:
X
Fréttabréf
Nafn
Netfang
*
*
Skrá netfang
Afskrá netfang
Fréttabréf í boði
Engin fréttabréf í boði.
Talan í myndinni hér að ofan er
*