www.JonDan.is
Og svo fara menn að túlka
      <description>Það er út af fyrir sig nokkuð merkileg árátta stjórnmálamanna að túlka niðurstöður kosninga þannig að þær hafi fjallað um eitthvað allt annað en þær gerðu. Ekki veit ég t.d. hversu oft ég hef heyrt því haldið fram að meirihluti þjóðarinnar hafi lýst yfirgnæfandi stuðningi við kvótakerfið í Alþingiskosningum, rétt eins og þær kosningar hafi verið þjóðaratkvæðagreiðsla um það mál en ekkert annað.
PS:
      <description>Ég sé ástæðu til að taka fram að þótt ég hafi farið á kjörstað í dag og krossað í NEI-reitinn, er hvorki Bjarna Benediktssyni né Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni heimilt að túlka atkvæði mitt að sínum geðþótta.
Hvað á þetta fýlubull að þýða?
      <description>Í Alþingiskosningunum 2003 var pabbi gamli harður á því að sitja heima. Það var held ég í fyrsta sinn. Hann vissi sem var að hann myndi ekki lifa öllu lengur og sagði mér hreint út að hann teldi ekki sitt hlutverk að taka neinar ákvarðanir um framtíð, þar sem hann yrði fyrirsjáanlega ekki þátttakandi.
Útrás fyrir reiðina
      <description>Einhverju sinni var sagt að í Sovétríkjunum sálugu hefðu aðeins einu sinni komið upp vandamál í sambandi við kosningar. Þá hafði einhver gerst svo bíræfinn að brjótast inn og stela úrslitunum nóttina fyrir kjördag. Þessi gamli brandari rifjast upp fyrir mér vegna þess að í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins eru úrslit kosninga hérlendis ámóta fyrirsjáanleg og í Sovétinu.
Gamlir og nýir skóladagar
      <description>Það er kærkomin upplyfting að fá einstöku sinnum eitthvað allt annað að hugsa og gera, en að stunda sína hversdagsbundnu iðju. Í gærmorgun var ég mættur í Langholtsskóla kl. 09:30 og kominn í dómarahlutverk í Stóru upplestrarkeppninni. Þarna lásu níu krakkar í 7. bekk upp sögukafla og ljóð, en okkar, dómaranna, beið svo það erfiða hlutskipti að velja tvo fulltrúa skólans í lokakeppnina.
Misbeiting forsetavalds og  mikilvægi markleysunnar
      <description>Stór fyrirsögn? Má vera. Gefur meira í skyn en greinarstúfurinn stendur undir? Má líka vel vera. Hvort heldur er, ætla ég að leyfa mér að fjalla í örstuttu máli um hvort tveggja; misbeitingu forsetavalds og mikilvægi markleysunnar.
Dómaraskandall
      <description>Í dag neyddist ég til að útskýra fyrir 15 ára syni mínum að það gæti mögulega verið hluti af „strategíu“ heimadómara í knattspyrnukappleik að espa leikmenn gestaliðsins upp. Tækist það gætu þeir í reiði sinni framið ásetningsbrot sem gæfi jafnvel réttmæta ástæðu til að sýna þeim rauða spjaldið.
Að tína peninga af trjám
Flýtimeðferð átti að tryggja strax
      <description>Þessa dagana virðist loksins vera að kvikna á perum í kolli margra, bæði stjórnmálamanna og annarra. Allt í einu ríkir réttaróvissa um lögmæti gjaldeyrislána. Það er eiginlega ótrúlegt að dómsúrskurð skuli hafa þurft til að fólk áttaði sig á þessu.
Súpueldhús á Íslandi