Bakgrunnur
Velkomin(n) á
JonDan.is
.
Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.
Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.
Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.
Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".
JonDan.is
Blogg
Greinasafn
Myndir
Hver er maðurinn
Fyrir mitt minni
Minningabrot
Af öðrum toga
Fjölskyldufréttir/Fami...
Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði
3.4.2009
|
Senda
|
Senda á fésbók
Þegar menn hafa ræðuskipti
Fyrir kosningarnar 1971 var Framboðsflokkurinn stofnaður. Þetta var grínframboð og fékk listabókstafinn O, sem reyndar stóð fyrir 0. Í beinni sjónvarpsútsendingu las frambjóðandi flokksins skrifaða ræðu, en þegar hann var hálfnaður með tíma sinn, kom flokksbróðir hans með miklu óðagoti, kippti frá honum handritinu og setti annað í staðinn. Frambjóðandinn hélt áfram lestrinum en nú brá svo við að stefnumálin voru orðin þveröfug við það sem fyrr hafði verið.
Auðvitað var þetta drepfyndið, eins og svo margt annað sem þetta unga fólk tók upp á. Reyndar minnig mig til að Gunnlaugur Ástgeirsson, segði frá því síðar að þegar kosningar nálguðust hefðu flokksmenn verið farnir að kvíða því að fá kannski þingmann kjörinn. Svo miklar undirtektir fékk þetta grín nefnilega og þegar upp var staðið fékk Framboðsflokkurinn 2.110 atkvæði og þar með heil 2%.
Þetta var aða vísu útúrdúr. Hin bráðfyndnu ræðuskipti í sjónvarpinu rifjast nú upp fyrir mér, vegna þess að ég fæ stundum á tilfinninguna að ræðuskipti eigi sér stað í raunveruleikanum enn þann dag í dag.
Ég fékk þetta nokkuð sterkt á tilfinninguna þegar Samfylkingin tók sæti Framsóknarflokksins í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins fyrir tæpum tveimur árum. Allt í einu voru Framsóknarmenn farnir að ásaka Samfylkinguna um undirlægjuhátt, nákvæmlega það sem Samfylkingarþingmenn gerðu áður en flokkarnir höfðu hlutverkaskipti.
Enn sterkari varð þessi tilfinning nú þegar Vinstri græn tóku við af Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn með Samfylkingunni. Nú halda Sjálfstæðismenn uppi málþófi, sem er óneitanlega nokkuð hefðbundið hlutverk stjórnarandstöðu.
Það er engu líkara en um það ríki eins konar þægindasamkomulag á Alþingi um að þingmenn skiptist einfaldlega á ræðuhandritum þegar þeir skipta um hlutverk, fara úr stjórn í stjórnaandstöðu og öfugt. ?Heyrðu, hérna eru stjórnarræðurnar mínar. Átt þú ekki fullt af stjórnarandstöðuræðum? Eigum við ekki bara að skipta??
Í þessu felst augljóslega mikið vinnuhagræði. En á hinn bóginn má spyrja hvort aðferðin sé til hagsbóta fyrir hina margumtöluðu ?virðingu hins háa Alþingis??
Skrá athugasemd
Til baka
{1}
##LOC[OK]##
{1}
##LOC[OK]##
##LOC[Cancel]##
{1}
##LOC[OK]##
##LOC[Cancel]##
Tweet
X
Hafðu samband
Mitt nafn
*
Mitt netfang
*
*
Fyrirspurn
*
Talan í myndinni hér að ofan er
*
X
Senda
Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda
Mitt nafn
Mitt netfang
Athugasemd / efni:
X
Fréttabréf
Nafn
Netfang
*
*
Skrá netfang
Afskrá netfang
Fréttabréf í boði
Engin fréttabréf í boði.
Talan í myndinni hér að ofan er
*