Bakgrunnur








Velkomin(n) á
JonDan.is.

Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.

Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.

Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.

Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".

Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði

Hrói höttur í Orkuveitunni

Fyrrum garðyrkjustjóri Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið ákærður fyrir að draga sér samtals 26 milljónir króna á nánast sléttum 5 árum. Hann stakk þó ekki peningunum í vasann, eins og menn gera yfirleitt, heldur notaði þá til að borga laun framkvæmdastjóra Garðyrkjufélags Íslands, en framkvæmdastjóri þess félags er jafnframt eini starfsmaðurinn.

Garðyrkjustjórinn var formaður Garðyrkjufélagsins og hefur kannski talið sig bera einhverja ábyrgð á því, að félagið gæti greitt laun. Lauslega má reikna út að launin hafi verið svo sem 350 þúsund á mánuði að meðaltali yfir þetta 5 ára tímabil, eftir að tekið hefur verið mið af launatengdum gjöldum.

Það er auðvitað ekki fallegt að stela peningum, en ég get þó að vissu leyti haft samúð með manninum. Þarna hefur hann setið í glæsibyggingu Orkuveitunnar og haft ljómandi gott útsýni jafnt yfir borgina sem bruðlið. Sú ákvörðun hans að láta Orkuveituna borga laun þessa eina starfsmanns Garðyrkjufélagsins, minnir dálítið á Hróa hött, sem stal frá ríkum og gaf fátækum.

Og einhvern veginn hef ég ekki trú á, að það hafi verið þessi maður, sem setti Orkuveituna á hausinn.

Samtímis birtast af því fréttir, að réttarhöld séu að hefjast yfir fyrrum bankastjóra Glitnis og nánum aðstoðarmanni hans, en þeir eru ákærðir fyrir að hafa veitt 10 milljarða lán án nokkurra trygginga. Og veiti menn lán án nokkurra trygginga, eiga þeir tæpast von á að sjá þá peninga aftur.

Fréttirnar af garðyrkjustjóranum og bankastjóranum má báðar finna á vef Ríkisútvarpsins. Það vakti sérstaklega athygli mína að í báðum tilvikum liggur sama refsing við brotinu. Garðyrkjustjórinn og bankastjórinn gætu sem sagt orðið klefafélagar í 6 ár.

Réttarhöldin eru auðvitað ekki afstaðin. Kannski verður bankastjórinn sýknaður. En ég hef mjög sterklega á tilfinningunni að garðyrkjustjórinn verði dæmdur.












X
Hafðu samband

Mitt nafn


Mitt netfang


Fyrirspurn




Talan í myndinni hér að ofan er





X
Senda


Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda


Mitt nafn


Mitt netfang


Athugasemd / efni:





X
Fréttabréf

Nafn


Netfang




Fréttabréf í boði

Engin fréttabréf í boði.






Talan í myndinni hér að ofan er