Bakgrunnur
Velkomin(n) á
JonDan.is
.
Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.
Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.
Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.
Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".
JonDan.is
Blogg
Greinasafn
Myndir
Hver er maðurinn
Fyrir mitt minni
Minningabrot
Af öðrum toga
Fjölskyldufréttir/Fami...
Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði
maí
11
2012
Stjórnmál
Ekki snerta ...!
Maður sem lá á dánarbeði, vaknaði upp við svo unaðslegan ilm, að hann varð sannfærður um að hann væri dáinn og kominn til Himnaríkis. Þegar hann leit í kringum sig þótti honum Himnaríki þó furðu svipað heimili sínu. Hann skreiddist fram úr, var enn nokkuð máttvana, en komst á fjórum fótum fram í eldhús og sá þar stóra hrúgu af ilmandi smákökum á borði. Hann teygði sig eftir einni, en fann um leið skerandi sársauka í hendinni.
Þegar hann leit upp, virtist sem eiginkonan hefði orðið honm samferða yfir móðuna miklu. Þarna stóð hún yfir honum með trésleif í hendinni og sagði: Ekki voga þér að snerta kökurnar. Þær eru fyrir jarðarförina.
Þessi gamla gamansaga rifjast upp fyrir mér þegar stjórnir lífeyrissjóða harðneita að koma sjóðfélögum sínum til bjargar, með því að fella niður skuldir á sama hátt og aðrir lánardrottnar. Forsvarsmenn lífeyrissjóða telja sér ekki heimilt að fella niður innheimtanlegar skuldir og eiga þá við svokölluð lánsveð. Vel má vera að þetta sé rétt.
Sé svo, á Alþingi að bregast strax við og veita nauðsynlegar heimilidir. Til vonar og vara ætti öllu heldur að skylda bæði lífeyrissjóði og fjármálafyrirtæki til að fella niður lánsveð í þeim tilteknu tilvikum, sem slíkt er nauðsynlegt og gerir fólki kleift að standa aftur í lappirnar.
Um þetta ætti að geta nást mikil samstaða á Alþingi, ef marka má yfirlýstan áhuga allra flokka á því að leysa skuldavanda heimila. Frumvarp ætti sem sagt að fljúga í gegn á örfáum dögum.
Og að því er lífeyrissjóðina varðar, þá hafa á undanförnum árum verið bitin nokkuð stór skörð í kökurnar sem þeir áttu að varðveita.
Til baka
Efst á síðu
Skrá athugasemd
Tweet
X
Hafðu samband
Mitt nafn
*
Mitt netfang
*
*
Fyrirspurn
*
Talan í myndinni hér að ofan er
*
X
Senda
Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda
Mitt nafn
Mitt netfang
Athugasemd / efni:
X
Fréttabréf
Nafn
Netfang
*
*
Skrá netfang
Afskrá netfang
Fréttabréf í boði
Engin fréttabréf í boði.
Talan í myndinni hér að ofan er
*
X
Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Nafn
*
Netfang
Blogg / Vefsíða
Athugasemd
*
Talan í myndinni hér að ofan er
Skrá athugasemd