Bakgrunnur








Velkomin(n) á
JonDan.is.

Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.

Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.

Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.

Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".

Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði
maí

03


2012
Almennt
Tveggja hektara verslun
Meðal þeirra auglýsinga, sem ég komst ekki hjá að sjá í kvöld milli frétta og Kastljóss, var frá Bauhaus, sem á laugardagsmorgun opnar 22.000 fermetra verslun í Reykjavík. Ég trúði eiginlega ekki að ég hefði tekið rétt eftir, hélt að þetta hefðu sennilega verið 2.200 fermetrar, sem sagt á stærð við 22 þokklegar íbúðir. En stærðin er staðfest á heimasíðu Bauhaus: 22.000 fermetrarar. Sem sagt 2,2 hektarar lands.

Um það leyti sem ég man fyrst eftir mér, kannski 1952 eða svo, var pabbi að slétta tveggja hektara spildu fyrir neðan gamla bæinn á Tannstöðum, Veituna, eins og þetta tún kallast enn í dag, örugglega vegna þess að þetta var fyrsta landspildan sem þurrkuð var með framræsluskurðum. Til verksins notaði pabbi gamla Fergusoninn, sem hann átti á félagi við bræðurna á Tannstaðabakka, en með þeirri vél fylgdu bæði plógur og herfi, sem reyndar þættu ekki afkastamikil tæki í dag.

Ég var reyndar svo ungur, að ég man þetta ekki í smáatriðum, en ég man þó vel hvernig plógurinn velti upp sverðinum. Með herfið held ég að hafi þurft að fara allmargar ferðir. Síðan var farið með slóða yfir flagið til að jafna og slétta sem best, og loks var áburði og grasfræi blandað vandlega saman og sáð með gamla áburðardreifaranum. Síðast var svo farið yfir allt saman með valtara, sem Búnaðarfélag Staðarhrepps átti.

Þetta voru fjöldamörg dagsverk þrátt fyrir alla vélvæðinguna og ég þykist muna það rétt, að pabbi hafi látið nægja einn hektara í einu og verkið þannig tekið tvö vor. En þetta voru miklar jarðabætur, því mig minnir að túnið hafi orðið sjö hektarar með þessari viðbót.

Og 60 árum síðar er opnuð verslun á stærð við þetta tún, jafnvel heldur stærri.

 Ég á satt að segja dálítið erfitt með að sjá Veituna fyrir mér, yfirbyggða. Kannski eru þetta bara 2.200 fermetrar. En hvort heldur er, má velta fyrir sér hvort 2007-eðlið nái ekki yfirhöndinni og í nýju Bauhaus-versluninni verði allt uppselt á hádegi.












X
Hafðu samband

Mitt nafn


Mitt netfang


Fyrirspurn




Talan í myndinni hér að ofan er





X
Senda


Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda


Mitt nafn


Mitt netfang


Athugasemd / efni:





X
Fréttabréf

Nafn


Netfang




Fréttabréf í boði

Engin fréttabréf í boði.






Talan í myndinni hér að ofan er






X



Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Nafn


Netfang


Blogg / Vefsíða


Athugasemd



Talan í myndinni hér að ofan er




Skrá athugasemd