Bakgrunnur








Velkomin(n) á
JonDan.is.

Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.

Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.

Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.

Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".

Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði
feb.

17


2012
Almennt, Stjórnmál
Dómurinn hékk á bláþræði
Vafalaust hefur mörgum létt í dag þegar Hæstiréttur dæmdi Baldur Guðlaugsson í tveggja ára fangelsi og gerði upptæka peningana sem hann fékk fyrir hlut sinn í Landsbankanum. Segja má að Hæstiréttur hafi staðist prófið. Baldur hlaut sinn dóm þrátt fyrir að tilheyra yfirstéttinni og þrátt fyrir vinatengsl alla leið inn í sjálfan Hæstarétt.

En þessi dómur hékk á bláþræði. Ólafur Börkur Þorvaldsson vildi vísa málinu frá. Hann telur í séráliti, að komið hafi í ljós að þau nýju gögn, sem urðu til þess að Fjármálaeftirlitið tók málið upp aftur, hafi þegar verið til hjá FME áður en Baldri var tilkynnt, að rannsókn málsins hefði verið hætt og því ekki heimilt að taka málið upp á ný.

Í öðru lagi vildi Ólafur Börkur sýkna Baldur á þeim forsendum að hann hefði ekki búið yfir neinum innherjaupplýsingum eins og slíkar upplýsingar eru skilgreindar í lögum

Í huga alls almennings held ég að það hafi alla tíð verið borðleggjandi að Baldur hafi brotið gróflega af sér, þegar hann seldi hlutabréf fyrir ríflega 192 milljónir króna, rétt áður en bankarnir féllu. Auðvitað vissi hann hvað var í aðsigi, hugsum við flest. Hann ákvað að taka sér þessa peninga og eiga þá. Hélt að hann myndi komast upp með það.

Það er mín persónulega skoðun, að réttlætinu hafi í dag verið fullnægt gagnvart einum þeirra manna sem tóku til sín peninga á siðferðilega óafsakanlegan hátt. Og ég er örugglega ekki einn um þessa skoðun.

En réttlætiskennd er eitt og lagatækniflækjur annað. Þegar réttlætið og lögin greinir á, gilda lögin. Hér mátti engu muna að sú ákvörðun FME, að fella niður rannsóknina á máli Baldurs og tilkynna honum þá niðurstöðu, yrði tilefni frávísunar. Þá hefði afbrotamaðurinn haldið öllum peningunum. Ekki vegna þess að hann hefði ekki sannanlega brotið af sér, heldur vegna mistaka starfsmanna FME.

Í framhaldinu megum við eiga mun á fleiri lagatæknilegum atriðum, sem haft gætu áhrif á dóma. Verjandi Baldurs nefndi í fréttum í kvöld, að málið hefði tekið allt of langan tíma. Rannsókn hrunmálanna tekur óhjákvæmilega langan tíma. Kannski kemur að því fyrr en varir, að Hæstiréttur vísi frá málum manna, sem augljóslega eru sekir, vegna þess eins að rannsóknin hafi tekið óhæfilega langan tíma.

Réttlætiskennd almennings var fullnægt í dag, en sú niðurstaða hékk á bláþræði. Hún er vonandi forboði þess sem koma skal, en ég er samt ekkert allt of bjartsýnn.












X
Hafðu samband

Mitt nafn


Mitt netfang


Fyrirspurn




Talan í myndinni hér að ofan er





X
Senda


Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda


Mitt nafn


Mitt netfang


Athugasemd / efni:





X
Fréttabréf

Nafn


Netfang




Fréttabréf í boði

Engin fréttabréf í boði.






Talan í myndinni hér að ofan er






X



Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Nafn


Netfang


Blogg / Vefsíða


Athugasemd



Talan í myndinni hér að ofan er




Skrá athugasemd