Félagsstörf

Ég hef nánast alla tíð tekið einhvers konar þátt í félagasamtökum og mér hafa í áranna rás verið falin ýmis trúnaðarstörf.

Svo dæmi séu nefnd var ég um eitt skeið formaður Íslendingafélagsins í Stokkhólmi og var ritari í stjórn Íslenska Landssambandsins í Svíþjóð í nokkur ár. Ég var líka um tíma ritstjóri Íslandspósts sem var fréttatímarit sambandsins.

Á námsárunum í Stokkhólmi tók ég virkan þátt í starfi leigjendasamtaka stúdentabústaðanna og var fulltrúi þeirra í áfrýjunarnefnd á vegum stjórnar stúdentabústaðanna. Ég sat í stjórn hverfasamtaka leigjenda og ritstýrði um skeið blaði sem þau gáfu út.

Á síðari árum hef ég tekið þátt í foreldrastarfi Laugardalshverfinu. Ég sat um fjögurra ára skeið í unglingaráði knattspyrnudeildar Þróttar og var í nokkur ár í foreldraráði Langholtsskóla, þar af eitt ár sem formaður.

Ég hafði á unga aldri brennandi áhuga á leiklist og það var á sínum tíma erfið ákvörðun að fara í menntaskóla fremur en leiklistarskóla. Ég lék á menntaskólaárunum nokkur hlutverk bæði á vegum Leikfélags MA og Leikfélags Akureyrar. Á níunda áratugnum starfaði ég með áhugaleikfélaginu Hugleik og lék þar ýmis hlutverk.




Umsjón og ábyrgð: Jón Daníelsson – Sími: 553 6118 – Veffang: www.jondan.is - Netfang: jondan[at]mmedia.is