Menntun og starfsferill
Ég er kominn í hóp "heldri borgara", fæddur 1949 og hef fengist við blaðamennsku og þýðingar lengst af, faðir fimm barna sem fædd eru á árabilinu 1971 – 1994.
Ég er að upphafi sveitastrákur norðan úr Hrútafirði, tók landspróf í Reykjaskóla 1966 og varð stúdent frá MA 1970. Ég þvældist dálítið um í háskólum annað slagið fram yfir 1980, bæði á Íslandi og í Svíþjóð og fékk nokkra nasasjón af ýmsum greinum en lauk aldrei neinu lokaprófi. Það er því nokkurn veginn sannleikanum samkvæmt þegar ég segist vera meiraprófsbifreiðastjóri að mennt.
Fyrstu árin eftir stúdentspróf starfaði ég við kennslu, vann á Amtsbókasafninu á Akureyri og var í sagnfræði og bókasafnsfræði við Háskóla Íslands í líklega einn og hálfan vetur. Fluttist til Svíþjóðar haustið 1977, fyrst til Lundar, en ári síðar til Stokkhólms, þar sem ég lagði stund á stjórnsýslufræði og forritun í háskólanum, ásamt reyndar ýmsu fleiru. Á Stokkhólsmsárunum vann ég lengst af fyrir mér sem strætóbílstjóri og síðar leigubílstjóri.
Eftir heimkomuna 1984 fór ég í blaðamennsku, fyrst á Tímanum sem þá hét reyndar NT, en síðar á Alþýðublaðinu, Helgarpóstinum og víðar. Fyrstu bókina þýddi ég líklegast sumarið 1971 og alla tíð síðan hafa þýðingar verið mismunandi stór partur af tilveru minni. Frá 1997 hef ég haft þýðingar að aðalatvinnu og föst verkefni við að þýða greinar í Lifandi vísindi, auk þess sem alltaf falla til nokkrar bækur á ári.