96 milljónir teknar með ofbeldi

Ég hef skoðanir. Ég hef EKKI óhagganlegar skoðanir. Ég er opinn fyrir skoðunum annarra. Ég er þolinmóður hlustandi. Og ég er reiðubúinn að skipta um skoðun. Ég vil nefnilega hafa það sem sannara, réttara eða, eða sanngjarnara reynist.


Ég reyni t.d. að lesa ALLA íslenska fréttavefi af sama áhuga.

Nema einn.

AMX.

„Vönduð miðlun frétta“ er einhvers konar undirheiti þessa netblaðs.

Eftir dálitla skoðun get ég þó staðfest að þetta er bæði rétt og satt. Fréttamiðlun AMX er afar „vönduð“. Frétta(rit)skoðunin er svo „vönduð“ að ekkert sleppur í gegn nema það sé örugglega „þóknanlegt“. Látum liggja milli hluta hverjum á að þóknast.

Tökum dæmi:

AMX-vefurinn segir:
„Nú byrjar hin árlegi ófögnuður þegar ríkisvaldið opinberar tekjur landsmanna, eftir að hafa hrifsað drjúgan hluta þeirra með ofbeldi. Hvers vegna má dugmikið eljusamt fólk ekki eiga sínar tekjur í friði fyrir hnýsnu fólki? Opinberar álagningarskrár eru til þess fallnar að ala á öfund. Það eru mannréttindi að fá að hafa sín fjármál útaf fyrir sig.“

AMX segist að vísu vitna í vef „Frjálshyggjufélagsins“, en ég hef ekki getað fundið þessi ummæli þar.

Vel að merkja: „...eftir að hafa hrifsað drjúgan hluta þeirra með ofbeldi.“

Í gærkvöldi skrifaði ég dálítinn pistil um mann sem tók út 240.000.000,- króna laun 2009. Mér skilst að rúmlega 96.000.000,- krónur hafi farið í skatt. Með ofbeldi? Eigum við ekki bara að trúa því? Sérsveitin hefur sem sagt stormað inn, tekið húsið, hvert einasta herbergi, og ekki farið fyrr en húsbóndinn var búinn að reiða fram 96 milljónir í 5-þúsundköllum.

Ef marka má „fuglahvíslið“ á AMX hefur þetta farið nokkurn veginn svona fram. Mikið er ég þakklátur ritstjóranum, sem vafalaust hefur með í ferð og hlýtur því að tala af eigin reynslu.

Ég efast ekki eitt augnablik. Þætti samt vænt um að Geirmundur Kristinsson stígi fram og staðfesti að skattheimtan hafi farið svona fram. Af honum voru jú teknar nærri 100 milljónir "með ofbeldi“.

Væri glæsilegt að hafa það á hreinu.



Umsjón og ábyrgð: Jón Daníelsson – Sími: 553 6118 – Veffang: www.jondan.is - Netfang: jondan[at]mmedia.is