Og svo fara menn að túlka

Það er út af fyrir sig nokkuð merkileg árátta stjórnmálamanna að túlka niðurstöður kosninga þannig að þær hafi fjallað um eitthvað allt annað en þær gerðu. Ekki veit ég t.d. hversu oft ég hef heyrt því haldið fram að meirihluti þjóðarinnar hafi lýst yfirgnæfandi stuðningi við kvótakerfið í Alþingiskosningum, rétt eins og þær kosningar hafi verið þjóðaratkvæðagreiðsla um það mál en ekkert annað.

Í gær var kosið um Icesave-samninginn sem þingið samþykkti með naumindum í lok desember. Niðurstöðurnar voru ljósar strax þegar Bretar og Hollendingar lögðu fram nýtt tilboð sem fól í sér 70 milljörðum króna lægri greiðslur. Hver átti eiginlega að samþykkja gamla samninginn við slíkar aðstæður?

Samt voga menn sér að halda því fram að með úrslitunum hafi þjóðin lýst vantrausti á ríkisstjórnina. Að sjálfsögðu mætti efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um traust eða vantraust gagnvart ríkisstjórninni. En spurningin á kjörseðlinum í gær snerist einfaldlega ekki um það.

Fjölmargir vilja líka túlka niðurstöðuna þannig að hún hafi stórbætt samningsstöðu okkar gagnvart Bretum og Hollendingum. Það er besta falli vafasöm túlkun og sennilega ekki annað en óskhyggja.

Og svo eru þeir auðvitað líka til sem virðast hafa haldið sig vera kjósa um það hvort við eigum yfirhöfuð að borga eina einustu krónu.

Allt eru þetta næsta fávíslegar tilraunir til að túlka niðurstöðurnar sér í hag. Og að halda því fram að þjóðaratkvæðagreiðslan hafi snúist um eitthvað annað en að fella þennan samning af þeirri einföldu ástæðu að mun skárra tilboð er þegar á borðinu, er eiginlega beinlínis óheiðarlegt.

Öllu alvarlegra er þó, að á ummælum Bjarna Benediktssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í dag mátti skilja, að þeir hyggist halda áfram að þvælast fyrir. Með því valda þeir þjóðinni ómældum skaða. Það er kominn tími til að ljúka þessu máli.



08.03.10 20:02
Þú vantúlkar. Verkstjórinn missti af 70 milljörðum og taldi óþarft að fara á kjörstað til að fella lögin úr gildi. Nýjan verkstjóra takk.

Umsjón og ábyrgð: Jón Daníelsson – Sími: 553 6118 – Veffang: www.jondan.is - Netfang: jondan[at]mmedia.is