PS:

Ég sé ástæðu til að taka fram að þótt ég hafi farið á kjörstað í dag og krossað í NEI-reitinn, er hvorki Bjarna Benediktssyni né Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni heimilt að túlka atkvæði mitt að sínum geðþótta.

Ég legg hér með blátt bann við því að atkvæðið mitt verði túlkað sem mótmæli gegn því að okkur Íslendingum beri yfirhöfuð að borga krónu.

Ég legg sömuleiðis blátt bann við því að atkvæðið mitt verði túlkað sem andstaða gegn sitjandi ríkisstjórn.

Ég ætla að leyfa mér að túlka atkvæðið mitt sjálfur. Túlkunin er þessi: Með því að krossa við NEI sagði ég JÁ við þeim 70 milljarða afslætti sem Bretar og Hollendingar buðu nýlega.

Hitt er svo kannski annað mál að þar með sýndi ég Bjarna og Sigmundi ákveðið traust.

Hér með lýsi ég yfir að ég treysti Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni til að hjálpa íslensku ríkisstjórninni og um leið íslensku þjóðinni til að ganga frá nýjum samningi strax í næstu viku.

Ég ætla rétt að vona að þeir bregðist ekki því trausti.



07.03.10 11:06
Slíkar yfirlýsingar hafa líklega mjög takmarkað gildi.Öllum er heimilt að túlka atkvæðagreiðsluna eins og þeir hafa vit og þroska til.Það er réttur að sitja heima en það er erfitt að túlka þá athöfn eða skýra. Kosningarnar voru eingöngu um ákvæði í núgildandi icesave-lögum en ekki um 70 milljarða afsláttarilboð. Kannski kemur betra tilboð. Bjarna og Sigmundi er ekki treystandi til neins. Steingrímur og Jóhanna hafa komið sér að óþörfu í erfiða stöðu en nú þarf að halda áfram
Umsjón og ábyrgð: Jón Daníelsson – Sími: 553 6118 – Veffang: www.jondan.is - Netfang: jondan[at]mmedia.is