Bakgrunnur








Velkomin(n) á
JonDan.is.

Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.

Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.

Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.

Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".

Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði

Þannig er Þróttur
- Afmæliskveðja frá jafnaldra
Jón Daníelsson
Þótt við Þróttur séum báðir fæddir 1949, lágu leiðir okkar ekki saman fyrr en báðir voru búnir að halda upp á fimmtugsafmælið. Vorið 2000 fór ég með son minn, sem þá var að útskrifast úr leikskóla, á fyrstu æfinguna á Þríhyrnunni bak við gervigrasið. Síðan eru liðin níu ár og talsvert fleiri mörk.

Fljótlega tókst náin vinátta með okkur jafnöldrunum, mér og Þrótti. Hún hefur haldist síðan og ég geri ekki ráð fyrir að nein breyting verði á því í framtíðinni. Ekki síður tókst góð vinátta í foreldrahópnum. Sumarið 2000 voru reyndar ekki margir strákar af ´94-árgangnum byrjaðir að æfa fótbolta, en þeim átti eftir að fjölga. Fyrstu árin fylgdum við drengjunum á hverja æfingu og horfðum á. Og að sjálfsögðu fylgdumst við líka með hverjum einasta keppnisleik.



Allt þetta góða fólk

Ég átti eftir að kynnast innviðum félagsins mun betur. Ég var fljótlega ?skikkaður? í unglingaráð knattspyrnudeildar og starfaði þar í nokkur ár. Það var í senn skemmtilegur og erfiður tími. Skipulag félagsins var ekki fyrirferðarmikið. Aðalstjórnin var jafnframt stjórn knattspyrnudeildar og sinnti einkum meistaraflokki karla. Stelpurnar í meistarflokki kvenna sáu held ég alveg um sig sjálfar og sömu sögu var að segja um blakdeildina og tennisdeildina. Af handbolta og körfubolta, sem voru í samstarfi við Ármann, hafði ég eiginlega engar spurnir.
 

Unglingaráð knattspyrnudeildar starfaði á þessum árum alveg upp á eigin spýtur og bar ábyrgð á öllum hlutum, t.d. ráðningu þjálfara, launagreiðslum til þeirra og innheimtu æfingagjalda. Þegar ég kom inn í unglingaráð sem ritari, var Heiðar Jón Hannesson formaður, Hanna Ingibjörg Birgisdóttir gjaldkeri og Ragnhildur Björk Sveinsdóttir sá að mestu um búningamál, sem voru fyrirferðarmikill hluti starfsins á þessum tíma, enda sá unglingaráðið sjálft um búningasölu.

Að öðrum ólöstuðum held ég að mest hafi mætt á Hönnu, enda öll peningamál á hennar höndum, þar með taldar launagreiðslur þjálfaranna um mánaðamót ? ásamt áhyggjunum sem því fylgdu að sjá til að nóg væri inni á bankareikningnum. Segja má að Hanna og maður hennar, Guðmundur Jónasson, hafi beinlínis tekið stóran hluta af þessu starfi inn á heimilið, því Guðmundur byggði upp iðkendaskrá í stóru Excel-skjali sem hann hélt við árum saman og sendi okkur í unglingaráði og þjálfurum reglubundið nýjustu uppfærsluna í tölvupósti.

Starfið í unglingaráði á þessum árum einkenndist öðru fremur af gífurlegri útþenslu. Iðkendum í knattspyrnu tók að fjölga strax þegar Þróttur fluttist í Laugardalinn og sú fjölgun hélt jafnt og stöðugt áfram næstu árin. Svo ég grípi upp tölur sem mér eru tiltækar: Haustið 2001 voru krakkarnir sem æfðu fótbolta hjá Þrótti rétt um 200. Haustið 2004 var fjöldinn kominn yfir 550. Stelpurnar tóku fyrir alvöru að spila fótbolta á þessum árum. Á þremur árum fjölgaði þeim úr 32 í 159. Og hér verður að nefna sérstaklega Mist Rúnarsdóttur þjálfara, sem þrátt fyrir kornungan aldur dreif kvennaboltann áfram af ótrúlegri atorkusemi.

Þótt skegg mitt sé nú orðið grátt get ég auðveldlega orðið pínulítið klökkur við að hugsa til alls þess góða fólks sem lagt hefur á sig mikla - en að vísu líka skemmtilega - sjálfboðavinnu, ekki aðeins fyrir börnin sín, heldur líka börn allra hinna - og um leið fyrir Þrótt.

Ótrúleg breyting
Það er eiginlega nokkuð merkilegt að hugsa til þess, hvernig þessar aðstæður hafa gjörbreyst á fáeinum árum. Nánast öll þau verkefni sem unglingaráð hafði með höndum þegar ég kom þar inn, eru nú komin í hendur starfsmanna félagsins.

Þróttur hefur nú framkvæmdastjóra, íþróttafulltrúa og umsjónarmann félagshúss í fullu starfi, auk þess sem allt bókhald er komið í launaðar hendur og starfsfólk á launum sér um vaktir í félagshúsinu. Sérstakur yfirþjálfari yngri flokka hefur líka verið ráðinn. Skrá um iðkendur er komin í sameiginlegan gagnagrunn hjá ÍSÍ. Heimasíða félagsins, sem var í minni umsjá þar til í vetur, er nú komin í hendur starfsmanna félagsins. Og þannig mætti telja lengi áfram.

Jóhannes mætti sjálfur
Sumarið 2002 markaði talsverð tímamót í barna- og unglingastarfinu. Þetta sumar var ReyCup-mótið haldið í fyrsta sinn. Og þetta sama sumar tókum við, foreldrahópurinn í 7. flokki karla, að okkur að halda Reykjavíkurmótið í flokknum. Það reyndist mikið álag en um leið skemmtileg lífsreynsla og varð til þess að við héldum okkar eigið mót sumarið eftir. Þá fengum við dálítinn styrk frá Bónus og mótið hét Bónusmót næstu árin. Þetta fyrsta sumar mætti Jóhannes sjálfur á staðinn og afhenti strákunum medalíur.

Þetta litla mót vafði smám saman utan á sig og í fyrra kepptu hátt í þúsund strákar og stelpur í 6., 7. og 8. flokki á þessu móti, sem hefur unnið sér ákveðinn sess sem fyrsta grasmót sumarsins hjá yngstu aldursflokkunum.

Höldum í unglingana
Ég er óneitanlega reynslunni ríkari eftir samfylgdina með Þrótti í tæpan áratug. Að langflestu leyti hefur mér fallið viðkynningin vel. Í þau fáu skipti sem mér líkaði verr, reif ég kjaft. Undantekningarlaust hafa þó slík atkvik fengið farsælan endi í góðri sátt.

Oft er sagt að alltaf megi gera betur. Í því efni get ég ekki stillt mig um að nefna eitt atriði, en það snýr reyndar ekki sérstaklega að Þrótti heldur öllum félögum jafnt, svo og heildarsamtökum þeirra, t.d. KSÍ. Hér á ég við mikla fækkun iðkenda þegar kemur fram á unglingsár.

Í fótboltanum aukast kröfurnar nokkuð hratt einmitt á hinum viðkvæmu táningsárum og þeim sem ekki hafa burði til að ná í allra fremstu röð finnst sér sennilega ofaukið. Svo mikið er víst að brottfallið og aukin áhersla á árangur og afreksstefnu virðast haldast í hendur.

Það er bæði skiljanlegt og nauðsynlegt að knattspyrnufélög leggi áherslu á að byggja upp framtíðarleikmenn, en ég held að samhliða þessari afreksstefnu, þurfi að viðhalda þeirri leikgleði sem er aðalatriðið í yngstu aldurshópunum, og finna þannig farveg fyrir þá sem ekki hafa burði eða áhuga til að ?meika?ða? í A-liðið. Takist að halda unglingum nógu lengi við efnið verða íþróttir og hreyfing sjálfkrafa að lífsstíl. Og það er auðvitað lokatakmarkið með uppeldisstefnu íþróttafélags.

Eilífi Þróttur
Þátttöku minni í foreldrastarfinu í Þrótti er nú að mestu lokið, enda er sá fimm ára sonur minn, sem ég leiddi inn í aldamótavorið á æfingasvæðinu, nú að verða 15 ára og kominn upp í þriðja flokk. Ég er löngu hættur að fylgjast með æfingum og sé ekki einu sinni alla leiki sem pilturinn spilar.

En svo merkilegt sem það er, þá hitti ég enn á leikjum megnið af þeim litla hópi foreldra ´94-árgangsins sem ég kynntist svo vel og varð svo samheldinn á allra fyrstu árunum. Strákarnir sem mynduðu þennan fyrsta kjarna í árgangnum eru nefnilega flestir enn að stunda fótbolta.

Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka öllu þessu góða fólki og öllum öðrum samstarfsmönnum fyrir samfylgdina um leið og ég óska jafnaldra mínum, Þrótti sjálfum, hjartanlega til hamingju með sextugsafmælið. Ég vonast líka til að leiðir okkar allra liggi saman enn um langa hríð.

Gaman væri að geta skyggnst örlítið inn í framtíðina og kíkt í þúsund ára afmælisritið sem út kemur þann 5. ágúst 2949. Ég er nefnilega ekki í nokkrum vafa um að það kemur út. Þróttur lifir jafnt kreppur sem góðæri. En þótt Þróttur verði þá orðinn þúsund ára, verður hann samt ekki degi eldri en nú, því hann yngist upp með hverju ungu barni sem mætir á sína fyrstu æfingu.

Þannig er Þróttur. 10 ára afmæli í '94-hópnum sumarið 2004.












X
Hafðu samband

Mitt nafn


Mitt netfang


Fyrirspurn




Talan í myndinni hér að ofan er





X
Senda


Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda


Mitt nafn


Mitt netfang


Athugasemd / efni:





X
Fréttabréf

Nafn


Netfang




Fréttabréf í boði

Engin fréttabréf í boði.






Talan í myndinni hér að ofan er