Ný skýring á einhverfu
- þýdd grein, birt í Lifandi vísindum 10. tbl. 2007

Sérstakar heilafrumur, svonefndar “spegilfrumur”, gera okkur kleift að setja okkur inn í tilfinningar annarra - en um það eru einhverf börn ekki fær. Á síðustu árum hafa niðurstöður fjölmargra tilrauna stutt þá kenningu að illa virkar spegilfrumur geti skýrt hin sérstæðu einkenni einhverfunnar. Sú nýja þekking gæti bæði leitt af sér að unnt verði að greina einhverfu fyrr en áður og ný meðferðarúrræði.
Lesa


Þannig er Þróttur
- Afmæliskveðja frá jafnaldra

Þótt við Þróttur séum báðir fæddir 1949, lágu leiðir okkar ekki saman fyrr en báðir voru búnir að halda upp á fimmtugsafmælið. Vorið 2000 fór ég með son minn, sem þá var að útskrifast úr leikskóla, á fyrstu æfinguna á Þríhyrnunni bak við gervigrasið. Síðan eru liðin níu ár og talsvert fleiri mörk.

Lesa


IceSave – JÁ eða NEI?
Að reyna að átta sig til fulls á þessu merkilega IceSave máli, má einna helst líkja við að vera skyndilega og óforvarandis staddur á framandi plánetu. Svo margir og furðulegir fletir virðast á þessu máli. En sé reynt að einfalda það, eru þrjár grundvallarspurningar sem þarf að svara.
Lesa


Prófkjör og styrkir
Óneitanlega brá mér illilega í gær, þegar í ljós kom að Steinunn Valdís Óskarsdóttir hafði alls þegið 4 milljónir króna frá tveimur fyrirtækjum til prófkjörsbaráttu sinnar á árinu 2006. Helgi Hjörvar reyndist líka hafa tekið við háum styrk, 900 þúsundum, frá einu fyrirtæki. Vissulega háði Steinunn Valdís prófkjörsbaráttu tvisvar þetta ár og hæstu einstöku styrkir hennar þannig „bara“ ein milljón.
Lesa


Evrópusambandið
Innan Samfylkingarinnar má heita alger samstaða um að Íslendingar eigi að sækja um aðild að ESB. Ég er þar engin undantekning. Við erum Evrópubúar. Núverandi aukaaðild okkar gegnum EES-samninginn dugar okkur ekki og færa má rök fyrir því að hún sé jafnvel verri kostur en að standa alveg utan við þetta samstarf. Þannig er t.d. nokkuð ljóst að við sætum ekki uppi með IceSave-reikninginn ef bankarnir hefðu ekki átt aðgang að EES-svæðinu.

Lesa
Skráðar greinar: 12 - Síða: 1 af 2


Umsjón og ábyrgð: Jón Daníelsson – Sími: 553 6118 – Veffang: www.jondan.is - Netfang: jondan[at]mmedia.is