Bakgrunnur








Velkomin(n) á
JonDan.is.

Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.

Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.

Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.

Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".

Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði

Hvar liggur réttlætið?

Ég er almennt reiðubúinn að taka mark á doktorum og prófessorum, þegar þeir fjalla um málefni sem fellur undir þeirra eigin fræðigrein. En þegar lögspekingar hyggjast rita lærðar greinar um hagfræði eða hagfræðingar um lögfræði, vil ég satt að segja frekar heyra álit sæmilega skynsams bifvélavirkja.

Tveir íslenskir hagfræðingar, þeir Jón Steinsson og Gauti B. Eggertsson, hafa nýlega hætt sér út í lögspekilegar vangaveltur um réttmæti dóms Hæstaréttar um gengislán. Ég les greinar þeirra beggja um hagfræði af áhuga og þykir augljóst að á því sviði séu þeir báðir skynsamir menn og greinargóðir í betra lagi.

En þegar þessir ágætu menn ætla að beita hagfræðihugsun á lagatúlkun eru tilburðirnir svipaðir því að ætla sér að mæla líkamshæðina með því að stíga á baðvogina. Eins og svo margir aðrir bregða þeir nefnilega mælistiku réttlætisins á lögfræðina.

Það er auðvitað rétt að þegar lán landsmanna hækka gríðarlega á örskömmum ,er ekki réttlátt að sumir fái alla hækkunina fellda niður en aðrir ekki neitt. Það hlýtur að vera öllum augljóst.

Jón Steinsson gerir Magnús Thoroddsen og röksemdir hans sérstaklega að umtalsefni  og reynir að hanka hann á að vera ósamkvæmur sjálfum sér með eftirfarandi tilvitnun í minningargrein Magnúsar um Einar Arnalds:

?Eitt af því fyrsta, sem Einar sagði við mig, er ég byrjaði að starfa með honum var þetta: Magnús, spurðu alltaf sjálfan þig í hverju máli, hvar liggur réttlætið? Þegar það er fundið er það hin rétta niðurstaða, sem stefna ber að, ef það er unnt eftir laganna leiðum. Þessa reglu Einars Arnalds leitaðist ég við að hafa að leiðarljósi þau ár, sem ég gegndi dómarastörfum.? (Feitletrun mín).

Þessi litla aukasetning: ?ef það er unnt eftir laganna leiðum? er kjarni málsins.

61. grein stjórnarskrárinnar hefst þannig: ?Dómendur skulu í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögunum.? Hér stendur EKKI: ?Dómendur skulu í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögunum, nema það stríði gegn almennri réttlætiskennd.?

Nafni minn Steinsson spyr svo í framhaldinu: ?Hvar liggur réttlætið??

Ég veit það ekki. Stundum er mér nær að halda að hversu lengi sem við leitum réttlætisins, verði það alltaf í sjónmáli, en aldrei höndlað. Líkt styggri kind, sem maður heldur sig stöku sinnum hafa króað af, en er svo óðar stokkin burt og maður nær í besta falli að slíta af henni örlítinn ullarlagð.

En ég veit hvar réttlætið er EKKI. Réttlætið er EKKI innbyggt í lögin. Það verða menn að skilja. Líka hagfræðingar.





17.07.10 20:35
Aldrei þessu vant ósammála þér. Jón og Gauti feta slóð frjálslyndari lagatúlkenda í Bandaríkjunum en Magnús hinna íhaldssamari. Aðferð þeirra fyrrnefndu er að setja lögin og stjórnarskrána í félagslegt samhengi m.t.t. nútíma og þess tíma sem þau voru sett. Þannig þróuðust t.d. hugmyndir um réttindi svarta og heimildir til fóstureyðinga. Breytt löggjöf kom í kjölfarið. Hér eru menn fastir í lagahyggju og Hæstiréttur er að mestu skipaður lagatæknum eins og þú virðist halda upp á. Pældi töluvert í þessu fyrir 15 árum og þarf að taka þá pælingu upp aftur. Að þessu sögðu: hef mikla ánægju af greindarlegum pistlum þínum. BKv. Baldur
17.07.10 23:52
Heill og sæll Baldur. Takk.

Rétt hjá þér að dómendur þurfa að ?túlka? lögin. Vega og meta. En bilið milli ?þröngrar? og ?víðrar? túlkunar er óhemju stutt. Þess vegna féll þessi dómur eins og hann féll. Það kann líka að vera rétt að Jón og Gauti kunni eitthvað í bandarískum lögum.

En það skiptir bara ekki máli.
Hérlendis er dæmt samkvæmt íslenskum lögum. Íslensk lög eru kannski vitlaustu lög í heimi, en dómendur verða samt að fylgja þeim.

Svo einfalt er það.
18.07.10 17:11
Nei, það er flóknara en það. Kv. B







X
Hafðu samband

Mitt nafn


Mitt netfang


Fyrirspurn




Talan í myndinni hér að ofan er





X
Senda


Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda


Mitt nafn


Mitt netfang


Athugasemd / efni:





X
Fréttabréf

Nafn


Netfang




Fréttabréf í boði

Engin fréttabréf í boði.






Talan í myndinni hér að ofan er