Bakgrunnur








Velkomin(n) á
JonDan.is.

Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.

Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.

Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.

Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".

Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði

Útrás fyrir reiðina

Einhverju sinni var sagt að í Sovétríkjunum sálugu hefðu aðeins einu sinni komið upp vandamál í sambandi við kosningar. Þá hafði einhver gerst svo bíræfinn að brjótast inn og stela úrslitunum nóttina fyrir kjördag. Þessi gamli brandari rifjast upp fyrir mér vegna þess að í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins eru úrslit kosninga hérlendis ámóta fyrirsjáanleg og í Sovétinu.

Þjóðaratkvæðagreiðslan á morgun er auðvitað út af fyrir sig marklaus að því leyti að þar er ekki lengur nema einn kostur í boði. Fyrir liggur tilboð um annan samning sem er svo sem 70 milljörðum hagstæðari. Já-atkvæðin verða því augljóslega mjög fá.

Á hinn bóginn búa forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna sig undir að túlka úrslitin sem stórsigur fyrir sig og sína flokka. Þannig geri ég fastlega ráð fyrir að formaður Framsóknarflokksins túlki úrslitin þannig að nú hafi þjóðin lýst því yfir að hún telji sér ekki skylt að borga krónu. Sömu túlkun má búast við frá talsmönnum Hreyfingarinnar, en þótt formaður Sjálfstæðisflokksins muni tæpast ganga svo langt í vitleysunni, leikur enginn efi á því að hann túlki úrslitin sem stórkostlegan sigur stjórnarandstöðunnar og um leið ósigur stjórnarflokkanna.

Öll ummæli í þessa veru eru auðvitað hreinasta bull. Og það er líka hreinasta firra að ímynda sér að ?stórt og feitt NEI? bæti samningsstöðu okkar.

Engu að síður þjónar þessi þjóðaratkvæðagreiðsla ákveðnum tilgangi. Í fyrsta lagi sýnir hún að núverandi stjórnarflokkar eru bæði löghlýðnari og lýðræðishneigðari en núverandi stjórnarandstöðuflokkar, sem fyrir nokkrum árum afnámu lög til að sleppa úr klóm lýðræðisins.

Í öðru lagi markar atkvæðagreiðslan nýtt upphaf. Jafnvel hörðustu andstæðingar beins lýðræðis geta ekki lengur haldið fyrir augu og eyru. Breytingar verða ekki umflúnar. Framvegis verður lýðræðisréttur almennings ekki bundinn við það eitt að kjósa sér einræðisherra til fjögurra ára í senn.

Síðast en ekki síst veitir þjóðarkvæðagreiðslan stórum hluta þjóðarinnar tækifæri að blása ? til að fá útrás fyrir reiðina sem enn kraumar og ólgar innra með svo ótal mörgum Íslendingum.












X
Hafðu samband

Mitt nafn


Mitt netfang


Fyrirspurn




Talan í myndinni hér að ofan er





X
Senda


Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda


Mitt nafn


Mitt netfang


Athugasemd / efni:





X
Fréttabréf

Nafn


Netfang




Fréttabréf í boði

Engin fréttabréf í boði.






Talan í myndinni hér að ofan er