Bakgrunnur
Velkomin(n) á
JonDan.is
.
Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.
Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.
Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.
Höfundurinn hefur nú loksins náð tilskildum aldri til að geta lokað ferilskránni með titlinum „Opinber starfsmaður án vinnuskyldu".
JonDan.is
Blogg
Greinasafn
Myndir
Hver er maðurinn
Fyrir mitt minni
Minningabrot
Af öðrum toga
Fjölskyldufréttir/Fami...
Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði
3.3.2010
|
Senda
|
Senda á fésbók
Gamlir og nýir skóladagar
Það er kærkomin upplyfting að fá einstöku sinnum eitthvað allt annað að hugsa og gera, en að stunda sína hversdagsbundnu iðju. Í gærmorgun var ég mættur í Langholtsskóla kl. 09:30 og kominn í dómarahlutverk í Stóru upplestrarkeppninni. Þarna lásu níu krakkar í 7. bekk upp sögukafla og ljóð, en okkar, dómaranna, beið svo það erfiða hlutskipti að velja tvo fulltrúa skólans í lokakeppnina.
Þetta var tíunda árið mitt sem fulltrúi foreldrafélagsins í þessari dómnefnd og jafnframt það síðasta, enda yngsti sonur minn að ljúka grunnskólanum í vor og ég byrjaði einmitt árið sem hann var í 1. bekk, sennilega vegna þess að einhver í stjórn foreldrafélagsins vissi, að ég var gamall áhugaleikari og gæti því mögulega haft eitthvert pínulítið vit á þessu.
Á þessum tíu árum er ég ekki frá því að krakkarnir séu farnir að leggja ögn meiri metnað í upplesturinn og æfa sig af meiri kostgæfni en raunin var fyrstu árin. Svo mikið er víst að í gær voru allir upplesararnir mjög góðir og næstum furðulega jafngóðir. Það var engu að síður skylda okkar að velja tvo og fyrir valinu urðu þau Hrafnhildur Magnea Ingólfsdóttir og Arnaldur Ingi Jónsson. Miðað við frammistöðuna í gær geri ég mér vonir um að Langholtsskóli nái a.m.k. einum fulltrúa á pall í lokakeppninni.
Lesefni krakkanna í gær vakti hjá mér gamlar minningar. Hver og einn las örstuttan kafla úr bók Brynhildar Þórarinsdóttur, Leyndardómur ljónsins, sem hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2004. Sagan gerist í skólabúðunum á Reykjum í Hrútafirði, þar sem skólakrökkum okkar daga gefst kostur á að dvelja tæpa viku í eins konar heimavist.
Þegar ég steig á svið í gærmorgun til að tilkynna um úrslitin, gat ég ekki stillt mig um að nefna það, að löngu áður en þessar skólabúðir komu til sögunnar, var þarna þriggja vetra heimavistarskóli og ég var í þeim skóla á árunum 1964-1966. Námsefnið var í meginatriðum það sem nú er kennt í unglingadeild, sem sagt þremur efstu bekkjum grunnskólans.
Sjálfsagt mætti vandræðalaust skrifa heila bók um mismuninn á þessum gömlu skóladögum og hinum nýju, þeim sem börn og unglingar nútímans upplifa sem hversdagsleika. Fáein atriði langar mig þó að minnast á.
Nú til dags fara krakkarnir heim þegar kennslu er lokið. Þegar ég var í Reykjaskóla fórum við heim í jólafrí, páskafrí og þar á ofan minnir mig eitt helgarfrí fyrir jól og annað eftir jól.
Nú til dags eru allar námsbækur ókeypis. Ég þurfti að borga fyrir mínar námsbækur ? eða öllu heldur þurftu pabbi og mamma að borga. En ég fékk góðar, vel skrifaðar kennslubækur, sem ég átti sjálfur og gat alltaf flett upp í ef ég hafði gleymt einhverju.
Þær kennslubækur sem nú til dags eru kallaðar ?ókeypis? eru sumar mun betri en þær gömlu, aðar miklu lakari ? en allar eru hrifsaðar til baka eftir fyrstu yfirferð.
Nú leggur skólinn ábyrgð á heimanámsaðstoðinni á foreldra og gerir um leið þann greinarmun, að það fari eftir þekkingu foreldranna hvort krakkarnir standi sig vel eða illa í skóla.
Það hefur margt breyst á þessum tíma. Gríðarlega margt hefur batnað til mikilla muna. En stöku sinnum hefur hvarflað að mér hvort nútíminn gæti ekki dregið dálítinn lærdóm af því sem vel var gert fyrir bráðum hálfri öld.
Skrá athugasemd
Til baka
{1}
##LOC[OK]##
{1}
##LOC[OK]##
##LOC[Cancel]##
{1}
##LOC[OK]##
##LOC[Cancel]##
Tweet
X
Hafðu samband
Mitt nafn
*
Mitt netfang
*
*
Fyrirspurn
*
Talan í myndinni hér að ofan er
*
X
Senda
Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda
Mitt nafn
Mitt netfang
Athugasemd / efni:
X
Fréttabréf
Nafn
Netfang
*
*
Skrá netfang
Afskrá netfang
Fréttabréf í boði
Engin fréttabréf í boði.
Talan í myndinni hér að ofan er
*