Bakgrunnur
Velkomin(n) á
JonDan.is
.
Notaðu gemsann
til að vafra
um vefinn.
Höfundur er meiraprófsbifreiðastjóri að mennt og á að baki glæsta framtíð í þeirri atvinnugrein.
Hann hefur ennfremur verið hákarlasjómaður, kennari, kokkur á togara, skólastjóri, svínafitubræðslumaður, blaðamaður, ritstjóri, sauðamaður, bókavörður, strætóbílstjóri, þýðandi, bóndi, framkvæmdastjóri, auglýsingasali, múrari og leigubílstjóri svo nokkuð sé nefnt.
Aðeins einu sinni hefur höfundinum borist atvinnuuppsögn. Hún var munnleg og með þriggja daga eftirvara.
Höfundurinn bíður nú spenntur eftir því að geta lokið ferilskránni með titlinum "ellilífeyrisþegi".
JonDan.is
Blogg
Greinasafn
Myndir
Hver er maðurinn
Fyrir mitt minni
Minningabrot
Af öðrum toga
Fjölskyldufréttir/Fami...
Jón Daníelsson
Gráskeggur úr Hrútafirði
Blogg
2012
2011
2010
2009
maí
14
2012
Stjórnmál
Eitt rétt hjá Ólafi Ragnari
Ólafur Ragnar Grímsson hóf kosningabaráttu sína með látum í gær. Af ýmsum ummælum hans mætti ætla að hann væri öllu fremur að bjóða sig fram í Frakklandi en á Íslandi, svo mikil völd sem hann virðist ætla forsetaembættinu. Látum það liggja á milli hluta. Athygli mína fönguðu þau ummæli hans, að fá mál séu betur fallin til þjóðaratkvæðis en kvótamálin.
maí
13
2012
Stjórnmál
Kvótakerfið hefur stóra kosti
Núverandi kvótakerfi í fiskveiðum hefur stóra kosti. Vafasamt er að nokkurt annað fyrirkomulag henti betur til að takmarka veiðar úr takmörkaðri auðlind. Frelsi til að kaupa og selja aflaheimildir hefur skilað mikilli hagræðingu og fiskveiðar eru nú gróðavænlegasti atvinnuvegur landsmanna.
maí
11
2012
Stjórnmál
Ekki snerta ...!
Maður sem lá á dánarbeði, vaknaði upp við svo unaðslegan ilm, að hann varð sannfærður um að hann væri dáinn og kominn til Himnaríkis. Þegar hann leit í kringum sig þótti honum Himnaríki þó furðu svipað heimili sínu. Hann skreiddist fram úr, var enn nokkuð máttvana, en komst á fjórum fótum fram í eldhús og sá þar stóra hrúgu af ilmandi smákökum á borði. Hann teygði sig eftir einni, en fann um leið skerandi sársauka í hendinni.
maí
03
2012
Almennt
Tveggja hektara verslun
Meðal þeirra auglýsinga, sem ég komst ekki hjá að sjá í kvöld milli frétta og Kastljóss, var frá Bauhaus, sem á laugardagsmorgun opnar 22.000 fermetra verslun í Reykjavík. Ég trúði eiginlega ekki að ég hefði tekið rétt eftir, hélt að þetta hefðu sennilega verið 2.200 fermetrar, sem sagt á stærð við 22 þokklegar íbúðir. En stærðin er staðfest á heimasíðu Bauhaus: 22.000 fermetrarar. Sem sagt 2,2 hektarar lands.
Skráðar færslur:
365
- Síða:
1
af
91
Tweet
X
Hafðu samband
Mitt nafn
Mitt netfang
Fyrirspurn
Talan í myndinni hér að ofan er
X
Senda
Nauðsynlegt er að fylla út reiti með feitletruðum titli.
Netfang móttakanda
Mitt nafn
Mitt netfang
Athugasemd / efni:
X
Fréttabréf
Nafn
Netfang
Fréttabréf í boði
Engin fréttabréf í boði.